...já það var of seint í rassinn gripið...
05.08.2005 20:59:56 / birna

Búhú!

Kæru félagar!

Komiði sæl og blessuð, Lilja hérna!

Birna er farin út, og fól hún mér það verkefni að láta alla vita af nýju bloggsíðunni hennar sem hún mun vera með úti í Brasilíu. Slóðin er www.blog.central.is/birna_brazil 

Vonandi er  þetta nú rétt hjá mér blessuninni!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2005 19:07:31 / birna

komin með fjölluuuu!

Jæja kæru vinir! Mér barst heldur betur skemmtilegt bref í pósti á fimmtudaginn var! Jú það var það sem ég er búin að vera að bíða eftir síðustu skabbilljón mánuðina, FÓSTURFJÖLSKYLDA Í BRASILÍU!!! Ég á semsagt einn pabba sem er 61 model og mömmu sem er 63 model og svö tvö systkini 13 a´ra systur og 15 ára bróður! Og..það er meira! Ég mun búða á riisa búgarði í syðsta fylkinu í Brasil, Rio Grande do Sul, í héraðinu Sao Sepé! Þau sendu mér myndir af bæði sér og bænum og þetta lítur svooo HIMNESKT ÚT! Ég get ekki beðið eftir að komast út og fá að sjá þetta allt og upplifa!

En en en...ég fór til Akureyrar um helgina, og það var bara alevg dásamlegt, eins og alltaf! Ég og logi skemmtum okkur konunglega, eins og alltaf, á föstudaginn og sunnudaginn:D Á Laugardaginn fór e´g svo til Þórgnýs og við (...ég) elduðum dýýrindis máltíð "saman" (bwahaha) og höfðum það agalega kózý! Um kvöldið kíkti ég svo til Margrétar, þar sem gríðarleg biturð einkenndi mannskapinn en við tölum ekki meira um það! Síðan var haldið í Vaglaskóg með Kristjáni, Þórgný, Vidda og Lindu;) Þar var ýmislegt MISskemmtilegt gert en á heildina litið var þetta hin fínasta ferð þrátt fyrir mjög dramatíska kveðjustund hjá mér og elskunum þeim Margréti og Arnrúni! Eftir viðburðaríka nótt ákváðum við Linda að fara í háttin, en þá var kuldinn orðin nær óbærilegur! Og þegar við komum inní tjad fundum við þar, okkur til mikillar skelfingar, það sem einu sinni var og hér kristján Eldjárn, en það sem við sáum var bláleitt skjálfandi hræ! Það var því gripið til örþrifaráða og eftir að allir höfðu klætt sig í eins mikil föt og kostur var á var samlokað sig saman undir tveim svefnpokum og einu teppi! Þetta fór nú samt ekki eins og vonast var til, því fimm mínútum eftir að boðið var góða nótt, skjálfandi röddu, var Linda Rakel komin út í horn með teppið MItt og svefnpokann MINN...og sofnuð værum blundi sem varði það sem eftir var nætur! Á meðan máttum við kristján hýrast undir einum svefnpoka skjálfandi eins of berklasjúklingar!...Ég get svo svarið það e´g hélt að þetta væri búið hjá okkur, en ég komst að öðru þegar ég vaknaði í svitakófi morguninn eftir! reyndar ekki nema vona þar sem e´g var klædd sokkabuxum, sokkum, íþróttabuxum, tveimur bolum, þykkri peysu af Þórgný og lopapeysu (sem síðar kom í ljós að olli Kristjáni töluverðum skaða á húð)! Þetta var sannarlega viðbjóðslegur morgun!

Eftir að hafa nöldrað í Vidda í 500 klukkustundir samfleytt, féllst strákurinn loksins á að keyra í bæinn! Þá var öllu pakkað saman og troðið í bílinn og brunað af stað, og farþegar farartækisins sátu og þögðu alla leið, með mismikið bros á vör!

Þegar ég komst "heim" skrapp ég til Kristínar og Hallgríms og átti þar enn aðra kveðjustundina yfir dýrindis kræsingum að hætti húsmóðurinnar!

Um kvöldið beið mín svo pizzaveisla hjá Loga og fjölsk. og að henni lokinni var horft á ófáa þætti af Sex and the City, eins og svoo oft áður;):haha:

Í morgun fór ég svo heim og átti erfiðustu kveðjustundirnar hingað til, en það voru Svanhvít, Örn og Logi elskan! og til að bæta úr aðstæðunum þá fattaði að sjálfsögðu um leið og ég settinst inn í rútu að síminn minn var ekki með í för!...frábært  helvíti þar á ferð!

Í dag er ég svo bara búin að vera að vesenast með pabba og redda hinum ýmsustu hlutum fyrir Brasilíförina, m.a. fór ég í agalega skemmtilegar bólusettningar við lifrarbólgu og gulusótt!

EN LIFIÐ HEIL BÖRNIN GÓÐ! -GÓÐAR STUNDIR

Birna !:P


» 15 hafa sagt sína skoðun

03.07.2005 11:31:18 / birna

jiiis

Jæja börnin góð...sunnudagur í dag og þúsund ár síðan ég bloggaði síðast8)... En hvað sem því líður þá...er klukkan að verða ellefu og ég á fótum og ákvað því að drita niður fáeinum línum áður en ég á að mæta í vinnuna, kl. 12.

Það er lítið búið að gerast í lífi mínu síðan ég bloggaði síðast...ég er aðalega bara búin að vinna vinna vinna. Ég fór á AFS námskeið í Reykjavík sem var algerlega magnað! Svo kom ég heim og hóf vinnu geðveikina en braut svo upp þessa ömurlegu rútínu með því að fara norður og heimsækja Loga elskuna eina helgi!

Ég er búin að fá staðsettningu í Brasil og ég verð semsagt í "litlum" bæ (rúmlega 230 þús. manns) í syðsta hluta Brasilíu. Bærinn heitir Santa Maria og er í fylki sem heitir Rio Grande do Sul. aaaaaaaaaa...þetta hljómar allt svo himneskt!!...En þegar nær dregur brottfarardegi (4. ágúst) þá mun ég setja inn heimilisfang og símanúmer úti svo þið á klakanum getið haft samband...öll handskrifuð (og á tölvutæku formi) bréf eru VEEL þegin ;)

Flugið út verður heldur betur törn maður. Það eru einhverjir sex tímar til New York, þar sem við gistum líklega á einhverju hóteli rétt hjá JFK flugvelli, eina nótt. Svo er fluginu haldið áfram til Sao Paulo (stærsta borgin í Brasil) og það flug tekur einhverja 10 tíma. Þaðan flýg ég svo að öllum líkindum suður til borgarinnar Porto Alegre.. c.a. 5 tímar. En ferðin er ekki enn á enda...því þaðan þarf ég örugglega að taka rútu eða eitthvað til Santa Maria sem tekur..jahh kanski 2-3 tíma!...þannig að ferðalagið allt...með nótt í New York...er örugglega einhverjir 40 klukkutímar...fjúff!

Ég fékk fyrir þó nokkru síðan frasa bók á portúgölsku, frá AFS. Ég get nú ekki beint sagt að ég sé búin að liggja yfir þessu..eeen ég kann eitthvað..ákvað að koma með nokkur dæmi:

Bom dia! Meu nome é Birna. Sou de Islandia. Tenho dezesseis anos.

Góðan dag! Ég heiti Birna . Ég kem frá Íslandi. Ég er 16 ára.

síðan kann ég líka að telja upp að tíu: um, dois, trés, quatro, sinco, seis, sete, oito, nove, dez og segja klósett: Banheiro!...

Svo að lokum er hér ein vel valin úr frasa bókinni:

Uma pessoa foi atropelada!

Einhver hefur verið sleginn í rot!..haha!

....Engum finnst þetta skemmtilegt nema mér..eeen, mér er alveg nákvæmlega sama! Ég vona að ég geti hitt sem flesta áður en ég fer út...sem er, eins og áður sagði 4. ágúst! Síðasta helgin mín á Íslandi...er semsagt Verslunarmannahelgin.....og ég veit enn ekki hvar ég verð...Akureyri var stefnan...en nú er það ekki víst...mögulega mun ég eyða Versló á Egilsstöðum, EIN, að pakka niður...en ég má..þökk sé JFK flugvelli og þeirri staðreynd að skiptinemarnir sem fara til Brasilíu fljúga gegnum Bandaríkin, TAKA MEÐ MÉR 2X 30 KG Í VÉLINA...sem er meira en margur annar skiptineminn! jíhíí...en það stefnir allt í að maður taki með sé c.a. 2 buxur, 5 pils, tvo sumarkjóla, milljón stuttermaboli, bikini, sandala,  sokka, nærföt, tvær peysur...regnjakka...og restin verður keypt úti!! ;)

En við sjáumst lömbin góð. ÆM off tú vörrk!

Até mais tarde, Adeus!

Birna Péés


» 17 hafa sagt sína skoðun

08.06.2005 17:09:22 / birna

Blendnar tilfinningar í garð sumarfrísins

Sæl Sæl.

Haldiði að stelpan hafi ekki náð stærðfræðinni....sem og öllu hinu...ég held nú það!:haha::haha::haha:... Nú er ég komin heim að vinna og bíða eftir því að 4. ágúst renni upp og ég leggi land undir fót og flytji til Brasilíu:haha:

Logi elskan mín er farin á sjó, sem er ömurlegt og ég sakna hans viðbjóðslega!.. það var bara hringt í hann með 1 dags fyrirvara og honum sagt að mæta á skipið daginn eftir (helvítis djöfulsins sjóarapakk). Svo fór hann akkúrat á meðan ég var í prófi!...Dagurinn sem átti að vera svo frábær (síðasti prófadagurinn) var bara algerlega ömurlegur! Reyndar fórum við turtildúfurnar úta að borða á Greifan í boði Svanhvítar daginn áður og fengum okkur dýrindis steikur:D Það var æði:D

Stelpurnar björguðu mér svo alveg frá þunglyndi því við fórum allar saman út að borða um kvöldið á Greifan (aftur), ég , Anna Guðrún, Arnrún Tryggva, Herdís og Linda mín. Svo þurfti ég að kveðja þær allar og það var náttúrulega ömurlegt eins og margt annað þann dag!

EN HVAÐ SEM ÞVÍ LÍÐUR ÞÁ NÁÁÁÐÐÐI ÉG STÆRÐFRÆÐI!!´

En ég ætla að fara og hringja í hana Lilju Kristínu sem er búin að vera að hórast fyrir samfélagið (in her own words) í allann dag, og biðja hana um að hafa ofan af fyrír mér, eirðarlausa hálvitanum, sem ég er.

Góðar stundir 


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.05.2005 14:05:12 / birna

Bóklegar Íþróttir...hömlulaus geðveiki eða samfarir?

...já...bóklegar íþróttir eru ekki skemmtilegt fag, en ég er einmitt að fara í próf í því á morgun..brjálað geim!

....Það fer alveg að koma að því að ég fer heim...það verður geðveikt, ég og Lilja að vinna saman úti í alllllt sumar...ahh!...sjæse hvað ég hlakka til að geta bara setið heima hjá mér í ró og næði á nærbuxunum að hlusta á tónlist og glamra á gítarinn!...það verður fokkíng yndislegt!...djöfull er ég þreytt!

Fór á Múgga tónleika á græna hattinum um daginn, það far helvíti flott hjá stráknum. Hann var að gera góða hluti...og ég hugsaði um það allan tímann hvað ég saknaði gítarsins míns, en fékk ekki að fara með.

það fer að styttast í að ég fari út, 4. ágúst nálgast óðum....hugsið ykkur.. Brasilía..1 ÁR...þetta verður önbelívabúll!

Ég át hamborgara í hádeginu, 10 mínútum síðar sá ég hann myndast á rassgatinu á mér!.. helvítis mötuneytisgubba..sleiktu mig!...orð fá ekki lýst hve mikið mig hlakkar til að losna úr þessu ameríska fangelsisfæði sem er þröngvað oní mann hérna!

......sjitt hvað það er plebbalegt að ganga með vatnsflösku á sér í skólanum, vá hvað það er fyndið!...

Logi Arnarson átti metið í morgun og leit út eins og, jahh, eitthvað dáið...en litla fíflið hélt bara áfram að sofa (OG SVAF TIL 10) á meðan ég ældist niðrá vist og hóf lestur "Þjálfun, Heilsa, Vellíðan"...klukkan hálf 8!!

Er skrýtið að vita ekki hver Georg Gírlausi er?...er ég hálviti?...á ég ekki skilið að lifa?

-stay green

Birna Péturs, meðalmanneskja í tilvistarkreppu.


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 10:08:20 / birna

Próf..

Sæl Sæl

Mikið gengur á í lífi mínu um þessar mundir, prófin við það að fara að steikja bajrgarlausann heila minn...sem lætur mér líða eins og eitthvað sem er að hefja nýtt líf í eistnapoka klamidýjusýkts sprautufíkils!...Stærðfræðiprófið sér algerlega um að halda fyrir mér vöku allar nætur og mig langar helst að deyja brennivínsdauða í sturtunni minni!...en..þar sem ég hef nú lagt það í vana mig að smakka ekki áfengi, og löngum verið þekkt fyrír hóflega drykkjusemi og skynsemi yfirleitt, þá er það nú algerlega út úr kortinu! (HAHH)...

...þessi litla pistilbudda verður víst ekki lengri að þessu sinni, en tölvutíminn er byrjaður og Jónas og Guðjón strax komnir á Overdrive..

-Stay fresh

Birna Pé

Lag Dagsins að þessu sinni er Man next door með Massive Attack


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 16:21:31 / birna

Blogg blogg...ggolb?

...og enn á ný geri ég ykkur til geðs (people do anything to please the hadycapt and the homosexuals)..

dagurinn var slappur, opnaði augun með þá von ólgandi í brjósti að æðri máttur myndi skarast í leikinn láta gámaskipið Herbjörgu falla af himnum ofan og lenda á mér, til þess að hafa löglega afsökun fyrir því að mæta ekki í tvöfalda stærðfræði í M6!... en guð, Allah, jesús, Móses, María, Finnur Beck eða hver það er sem ræður ríkjum þarna handan ákvað að þráast við enn eina ferðina og neyða mig út úr rúminu. Með hárið líkt og verstu hamfarasvæðin á eyjunni Súmötru eftir jarðskjálftann og flóðin á dögunum og andlit sem minnti óseyjanlega mikið á eitthvað sem fólk finnur í endaþarmi manns með hægðatruflanir og göngulag eins og forfallin sprautufíkill með stert af liðagigt, hélt ég af stað í skólann, allt of seint að sjálfsögðu og gekk í þungum þönkum uppá möðruvelli þar sem beið mín ekkert nema eymd og volæði í formi formerkja og tölustafa!...þegar ég settist niður og bjó mig undir dauða minn fattaði ég að ég var með titillag KODAK á heilanum (share moments, share life) og við það vaknaði sjáfseyðingarhvöt vor úr dvala og löngunin til þess að drekka eithvað grænt sem freyðir fór að segja óþægilega mikið til sín!...G-unnar (sem stendur fyrir geðveikt ógeðslega ýkt sexý og súper kyngoðið Unnar ;) gekk hægum skrefum inní skólastofuna og skelti bunka af blaðarusli á kennaraborðið svo rykið þyrlaðist upp! Mig langaði mest að leggjast á gólfið í fósturstellinguna og smyrja sjálfa mig með Gunnars Majónesi til þess að lísa hringiðu tilfiningaminna á þeirri stundu er nafnið mitt af lesið upp, en ég lét það vera og svaraði hógvær sama orði og fólk sem giftir sig segir gjarnan við altarið, ,,já"..og leiddi síðan hugan að því hvernig ég ætti að taka því að ég hefði notað þetta merkingaríka-hamingjutengda-brúðkaupsorð við G-unnar...það olli því að gríðarlegt löngun til þess að hlaupa endurtekið á vegg, með hausinn á undan fór að skríða inn á milli eyrnanna á mér og mér leið eins og ég hefði drukkið flóaða mjólk með gubbi í!....senn var tíminn á enda, og ég áttaði mig á því að ég gerði ekki rrassgat í honum, frekar en fyrri daginn og gekk út með snert af frelsistilfinningu en hún féll í skuggan af hungri sem kom fram líkt og ég væri með trompetsólóleikara í viðjum móðurkviðs míns!...það var eiginlega bara ömurlegt!

...Þetta var smá dæmi um þær sterku tilfinningar sem ég hef í garð stærðfræði og náttúruvísinda...þau sjúga feitann gölt í helvíti!....

annars er ég nokkur fresh!

Lag dagsins er Doll Is Mine með Blondie Redhead


» 118 hafa sagt sína skoðun

15.02.2005 14:21:06 / birna

Íslenskutími...

Já kæru landsmenn...Íslenskutími hjá Sigríði Steinbjörns gengin í garð..nú eru jólin!

...langar að koma með textabút dagsins frá hinni föngulegu stúlknasveit NYLON sem hefur, eins og allir vita, tröllriðið ungu kynslóð þessa lands frá því þessar fríðleiks stúlkur hófu feril sinn í byrjun sumars 2004, að mig minnir!...Ég vil biðja ykkur að lesa yfir þennan textabút með það í huga að markhópur sveitarinnar og fólk sem hlustar á þær án þess að þjást af tímabæru geðrofi eða varanlegri heilageðveiki, eru á aldrinum 4 - 10 ára og iðulega stelpur í bleikum snjógöllum sem jafnvel leggja sér sand til munns!....allavega hér að neðan má sjá þennan textabút helvítis er flokkast án efa undir eitt af vélarbrögðum djöfulsins.

,,Ég veit þér finnst ég of feit,

Þú bauðst mér aldrei á deit,

Veit að vinum þínum finnst ég afleit”

,,Hrundi í það niðrí bæ,

Fyrrverandi sagð´ekki hæ!

Æli í taxann sem ég næ,

Get ekki meira!!”

....Já...uppyggjandi efni fyrir framtíð vorrar þjóðar, en það eru jú börnin...já áfram svona!

hahahahah!...helvítis skinkuband sem þessar ofvöxnu gelgjur eru! Hahh!

Kveðja úr H9



Birna Pééé.:haha:




» 120 hafa sagt sína skoðun

12.02.2005 16:16:28 / birna

hahaha...

My darling people from all over the world, I have, at last, found the recipe of a perfect evening... here´s a list of what materials you´ll need to make an evening unforgettable!:

1. nærbuxur

2. hvít frystihúsastígvél (stígvél starfsfólks sundlaugarinnar á Egilsstöðum myndu ganga ef hin eru ekki við hendina)

3. 100% NYLON (geisladiskurinn)

...yes my dear friends, it´s simple, it´s saucey, it´s sacred,and last but not least, its sexy!

....I´d recommend you people to try this at home..it doesn´t get more simple than this!... if you´d like any more information call Logi, the man behind everything, the man who invented the whole thing, at 23872318!

híhíhí!...:klikk:


» 117 hafa sagt sína skoðun

01.02.2005 16:30:01 / birna

Skólinn...well there´s something to eat!

Well, well, welll...langt síðan ég hef bloggað...suss!

Seeemsagt, ég er komin norður eftir ruusalegt frí í höfuðborginni. Þar var verslað helling og djammað einnig! Ég og hann Logi ákváðum svo að skella okkur í bíó í gær, miiikil mistök það, en myndin Aviator varð fyrir valinu og jesús minn, við getum orðað það svo að..jahh, við fórum út í miðri mynd!! Ég get svo svarið það að hún var svona 1 klst. og 40 mínútur fyrir hlé..allt virtist ætla að gerast í byrjun eeeen neiii, langdregnari mynd hef ég aldrei séðð...og hún er tilnefnd til hvað, 400 óskarsverðlauna!..:$ Þetta var nú samt ótrúlega gott kvöld, en Logi, ég vel næst..hehe!!:haha: En jújú, fyrsti skóladagurinn á nýrri önn var í morgun, slappur, mjög slappur! En hann hlýtur að bjargast á eftir en Siggi Már er in town og það er algerlega á stefnuskránni að hittast og gera eitthvað sneeeðögt saman:) Eeeen jæja ég ætla ekki að drepa ykkur úr leiðindum með þessu ömurlega innihaldssnauða bloggi mínu!

Eeen eins og Lilja segir ,,Það er skammgóður vermir að pissa í skó sinn!"...geymiði þetta...þó ekki í poka..it´ll get sticky!....?:P

Sæææliiiir!:haha:

Birna...Brian?


» 130 hafa sagt sína skoðun

17.01.2005 13:54:21 / birna

Mennsk hárbolla

Jæja Lömbin mín....það eru eingungis 3 próf eftir, Danska á morgun, Félagsfræði á fimmtudaginn og Lífsleikni á föstudaginn! Svo skal djammað eins og skinkur að síðasta prófi loknu. Djöööfull hlakkar mig til!! Eeen hvað um það, ég sit núna í Seturstofunni og ákvað, eftir hálftíma döskulestur, að gefast upp og leita að einhvurju formi skemmtunar á veraldarvefnum....endaði á minni heimasíðu, já, stundum líður mér eins og örvita!....svo núna sit ég bara hér, innan um slefandi MA-nörda sem sitja sveittir yfir Íslenskri Málsögu og Snorra Eddu...sehhhgi svona;) ....Mhhh...Já, ég er að hlusta hérna á hinn margrómaða Rokkland disk...mæli með að allir kaupi sé þann nýjasta...og bara alla hina líka...gott efni;) Það hefur nú ansi fátt á daga mína drifið að undanförnu, bara búin að vera í prófum síðan í móðurkviði og varla farið útúr húsi nema rétt til þess að skinkast uppí súper til þess að kaupa meiri neyslu. Prófin hafa þó gengið allbærilega, nema þá kanski helst stærðfræðin, það verður fróðlegt að sjá hvað kemur útúr henni...og ef ég næ....well smack me up and call me Judy! Í gær lenti ég þó í heldur óskemmtilegri uppákomu. Það var þannig að ég sat í mestu makindum á gólfinu inní herbergi að læra félagsfræði í tölvunni og bragða á smápizzu frá Kristjánsbakarí, þegar allt í einu, kassi, sem staðsettur var fyrir framan mig, stilltur pent upp við vegginn, tók uppá því að hreyfast til og frá og svo heyrðist eitthvurt krafs og svona hélt þetta áfram á meðan ég efaðist um geðheilsu mína sem og tilgang minn á jörðu ásamt snifsi af efasemdum ganvart mér sem lífveru! Eftir að hafa setið og starað á þetta nokkra stund gerði ég stutt stopp í helvíti og hljóp öskrandi fram á gang með þá von í brjósti að rekast á meindýraeyði á förnum vegi. Þessi geðveila mín endaði svo í herbergi 3212 þar sem Gitta var fengin í útkall og við héldum gallvaskar af stað inn ganginn í fylgd með Ellen úr 3213 og svartri ruslafötu frá Bristol, í gereyðingu þessa mennska skriðdýrs sem hafði tekið sér bólfestu í viðjum herbergis númer 3215. Eftir dauðhreinsum herbergissins og mikilla vangaveltna var leitin gefin uppá bátin og veiðimenn héldu vonsviknir til síns heima. Í milli´tíðinni var Sólveig, ásamt föngulegu föruneyti, kölluð út í heilgalla og sagðist ekki munu sofa í herberginu fyrr en eyðilegging mennska loðboltans væri yfir staðin. Það varð henni þó ekki að ósk sinni því við tvær neyddumst til þess að sofa inní herberginu okkar, vissar um að Ellert, eins og ég nefndi þennan óboðna gest, sæti í góðu yfirlæti einhversstaðar inní herberginu að hlæja að okkur...helvískur! eeeeeeeeeeeeeeeeeen ætli ég verði nú því miður ekki að fara að klessast til þess að lesa þetta hrossatungumál, dönskuna....þannig að Lifið heil og elskist nóg!

Birna (da man) :haha:


» 130 hafa sagt sína skoðun

25.12.2004 23:00:54 / birna

jahhá

Já, margir eru leiðinlegir sem heita Bergdís, það er víst ábyggilegt! (en fyrir þá sem ekki vita Bergdís dulnefni manneskju sem ákvað uppá gamanið að ráðast á mig, þó ekki í eigin persónu, nei hún var of mikill heigull í það og ákvað því að drulla yfir mig hér á síðunni minni...alltaf gaman að svona löguðu!..öhhmm, eða hvað?)

Eeeeen hvað sem því líður þá var aðfangadagur í gær og fór hann fram á mínu heimili, eins og eflaust á mörgum öðrum stöðum,  með miklum glæsibrag! Ég halaði inn pökkunum og fékk þetta árið alveg brjálaðæðislega flottar gjafir!;) Þá ber helst að nefna mp3 spilarann, og krumpustígvélin sem ég fékk frá elsku mömmu og pabba, og svo alla shjeeeðveiku geisladiskana: Mugison, Hjálmar, Maus, Tom Waits og Brain Police!...SCNIIILLD;)...svo auk þess fékk ég fult af skarti og snyrtivörum og allskonar drasli;);)

Eeeeen ég vil nota tækifærið og bjóð hann Snorra Pál velkomin heim en þessi elska er búin að vera útí Noregi að skíðast síðasta mánuðinn!

Eeeen ég ætla að fara að horfa á Harry Potter með Familíunni en Ragnar litli bróðir fékk hvorki meira né minn aen Play station 2 tölvu og á að prufukeyra gripinn, sem eins og flestir vita er í senn DVD spilari!...og komist var að samkomulagi um að vígja græjuna með þessum breska sjarmör og galdramanni;);)...allavega, gleðilega hátíð öllsömul...veriði margblessuð;);)

Birna Péturs!;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.12.2004 15:59:28 / birna

Jólaskinkaaaaaa

Ég er kominn heim í heiðardalinn,
ég er kominn heim með slitna skó,
kominn heim til að heilsa mömmu,
kominn heim í leit að ró,
kominn heim til að hlusta á lækinn
sem hjalar við mosató.
Ég er kominn heim í heiðardalinn
ég er kominn heim með slitna skó.

Já, góðir hálsar, ég er komin heim, and I like it!¨...Ég er búin að gera margt og mikið síðan ég snéri aftur á heimaslóðir á föstudaginn. Ég fór á rúntinn með Sigrúini Júníu, svo í gær var haldið í jólagjafa innkaup með Þóru syss og um kvöldið var bakað ógrynni af piparkökum og Lilja Kristín heimsótt, sem var mega stuð! Í dag fórum við svo og nældum okkur í þetta líka stæðilega jólatré sem ég nefndi Albert um leið og við hittumst fyrst, ég og tréð! :haha:

eeeen já, ég tek það fram að ég sendi einungis EITT jólakort þetta árið, þannig að SORRY allir!

Jæja, ég ætla að fara og fá mér kakó og smákökur, veriði bless lömbin mín!

Birna!


» 40 hafa sagt sína skoðun

16.12.2004 09:02:53 / birna

yeahh

kæru félagar, ég er komin með nettann hanakamb og sítt að aftan!! vúhúúú8)

Já, haldiði að stelpan hafi ekki bara skellt sér í alveg nýtt hár-makeover, í gær, jújú, og nún a er ég komin með vott af mullet á hliðunum, samt ekki, og sítt að aftan og hanakamb! jejj!;) Eeeen það er ekki öll sagan sögð enn, því rjóminn af öllu saman verður á eftir þegar ég fer í litun líka, þá verður eitthvað sullað og leikið sér með liti!:haha::haha::haha:

En hvað sem því líður þá er ég að fara heim á morgun í jólafrí, og það eina sem hægt er um það að segja er jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeesss!

En Núna er ég bara að reyna að þrauka út einn skitinn stærðfræðitíma hjá Unnari, sem er svo sannarlega helvíti á jörð!! :o)

Eeeeen, þið sem heima sitjið, ég hlakka fáránlega til að hitta ykkur öll og get ekki beðið eftir að fara heim, þrátt fyrir að vera að missa af Sálarballi á Laugardaginn í Sjallanum:( En allavega, eins gott að þið takið vel á móti mér þegar ég kem!:P

Birna Pétursd.

P.S. skrifiði nú í gestabókina!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2004 19:07:55 / birna

jæja..

jæja, ég hef nú loks tekið þá stóru ákvörðun að fá mér mullet/hanakamb/síttaðaftan klippingu, sama hvort ykkur líkar eður ei! Mér er alveg sama um ykkar skoðun, þið eruð ekkert annað en lásí afsökun fyrir manneskjur!....eeen hvað sem því líður þá semsagt verð ég í loka morgundagsins komin með gersamlega umbreytingu á hári mínu og ætlast ég til þess að þið óskið mér öll til hamingju með afrekið, því ég er nú þegar að brotna saman úr stressi yfir þessu öllu saman!!
eeeeeen jájá, ég avr að koma af æsilegum TÓMA fundi þar sem við Logi vorum ekki alveg að standa undir væntingum meðlima stjórnarinnar, en meiningin var að halda "Litlujól TÓMA" í dag, og allir áttu víst að mæta með bakkelsi meðferðis. Sigurður og Addi létu ekki á slag standa og mættu með dýrindis tertur úr bakaríinu við Brúna, sem hafa sjálfsagt kostað morðfjár (skal tekið farm að neysla þessi var ekki fjármögnuð úr sjóði TÓMA). Jóna var ekki með neitt slakara í pokahorninu en tátan mætti með heimabakaðar piparkökur!;) Ekki alveg sömu sögu er að segja um mig og Loga, en í okkar farteski leyndust þrjár forlátar Subway kökur (LAS LOGI) og krumpuð skúffukaka úr viðjum SÚPERS, keypt þremur mínútum fyrir fund (LAS BIRNA)!..eeen, skárra en ekkert;)

Ég er víst að fara í stærðfræðipróf á morgun hjá honum Unnari félaga mínum og velunnara (hahahahahha vel-UNNAR-a, brandari!) og ég býst við að fá´ienkunn útúr því einhvurstaðar á bilinu 0 og uppí, tjahh, hvað eigum við veðja á, 1?...nei, það er nú kanski í við of há tala! En allavega, ég get alveg sagt það beint uppúr viðjum sálar minnar, að stærðfræðikennslan og hallir hennar fylgifiskar og kvillar, í þessari annars virtu menntastofnun er landi og þjóð til skammar og má fyrir mér bara fara til h**v**is!!! Já lömbin mín, margt er helvítis kjaftæði í henni veröld, já það er sko víst!

EEENN HEITASTA  OG UMTALAÐASTA SLÚÐRIÐ Í SKÓALNUM ÞESSA DAGANA ER VEL ÞESS VERT AÐ SKRIFA UM, ENDA HEF ÉG NÚ LÁTIÐ AF ÞVÍ VERÐA, VEGNA FJÖLDA ÁSKORANNA! OG VIL ÉG BIÐJA ALLA ÞÁ EF HAFA ÁHUGA Á AÐ LESA SIG TIL UM ÞETTA AÐ KLIKKA Á LINKINN HEITT MÁL HÉR TIL HLIÐAR EINVERSSTAÐAR!!

JÓLAKVEÐJUR

BIRNA!!;););)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3